Moussaka
Moussaka er grískur ofnréttur, en upphaflega kemur orðið mussaqqa'a úr arabísku og merkir kælt. En samkvæmt http://en.wikipedia.org/wiki/Moussaka eru margar gerðir og tegundir af Moussaka þám tyrknesk, grísk, arabísk, rúmensk ofl.
Moussaka er eins og Ítalir gera lasagna en ekki samt eins lagskipt og lasagna.
Grikkir setja eggaldin og kartöflur í botninn og nota hakkað kjöt eða bitað kjöt og svo pískað egg ofan á.
Þeir krydda með allskonar kryddjurtum, þ.á.m. hvítlauk, lárviðalauf og kanil svo eitthvað sé nefnt. Persónulega finnst mér best að búa til einn stórann pottrétt og krydda með ferskum kryddjurtum, kanil og smá múskati. Ég set flysjaðar kartöflur í botninn og geri það þannig að botninn er vel hulinn kartöflum (einnig er hægt að nota kúrbít (zucchini) en hann er ekki eins bragðgefandi og kartöflurnar) því næst set ég “pottréttinn”, kalla þetta bara gums og því næst béchamel sósu sem er bara bragðbættur jafningur ofan á (margir vilja píska egg og hella ofan á).
Svo ef ég á tómata hef ég gjarnan skorið þá í sneiðar og lagt pent ofan á béchamel sósuna og svo rifinn ost og örlítið af þurrkuðu timjan.Set inn í ofn 175 gráðu heitann ofn og hef þetta bara inn í ofninum þar til osturinn og béchamel sósan eru gullin og flott.
Ég ber þetta svo fram með hrísgrjónum (en hægt er að sleppa því af þessi réttur er kolvetnisríkur), hef með þessu fersk salat með fetaosti og brauðteningum frá Knorr, ótrúlega góðir hvítlauksbrauðteningarnir frá Knorr.
Verði ykkur svo bara að góðu.
Kv. Matargatið matargatid@hotmail.com
Ég minni á að endilega fara á www.wikipedia.org, eða www.google.is og slá inn þeirri matartegund sem ykkur langar að fræðast um. Þetta eru skemmtilegir og upplýsandi vefir sem gaman er að skoða.
Matargatið komið á kreik
Þar sem ég er byrjaður í Kennó, valdi ég mér kjörsviðið, matur, menning, heilsa (gamla heimilisfræðin).
Hlakka mikið til. Kem með uppskrift seinna
Kv. Matargatið
Matur er manns gaman
Einhvers staðar er sagt; Maður er manns gaman. Ég veit ekki með það en ég veit frekar að það ætti að vera: Matur er manns gaman. Ég veit að þetta er satt því við þurfum að borða og við vitum ekkert betra en góður og velheppnaður matur sem klikkar aldrei.
Eitt af mínum uppáhaldsmat er Tikka Masala réttur sem hefur aldrei klikkað hjá mér og um helgina eldaði ég alveg fullt af svoleiðis pottrétt. Ég gerði stóra uppskrift en ég skal reyna að minnka hana.
Tikka Masala pottréttur
(Ég gef ykkur bara innihaldið og þið reiknið svo út hvað þið þurfið mikið og fyrir hve marga)
Svínakjöt (Má vera kjúklingur og fleira en mér finnst best að hafa svínakjöt)
Sæt kartafla
Gulrætur
Sveppir
Paprikur
Rauðlaukur
Blaðlaukur
Tikka Masala sósa frá Tilda
Brún hrísgrjón
Kjúklingabaunir
Skerið allt grænmetið í fallega og hæfilega munnbita.
Steikið fyrst sætu kartöfluna og gulræturnar (þær þurfa lengstann eldunartíma)
svo steikið svínakjötið með.
Setjið svo restina af hinu grænmetinu út í og hrærið saman og látið malla saman í 10 mín. við vægan hita.
Því næst hellið Tikka Masala sósunni út í og brúnu hrísgrjónunum (þau eru notuð til að þykkja ef sósan er of mikið) og látið malla í 30 mínútur. Svo seinustu mínúturnar eru kjúklingabaunirnar settar útí og haft í um 10 mín.
Berið fram með hrísgrjónum, fersku salati með fetaosti og naan brauði
Verði ykkur að góðu
Kv. Matargatið
Ég er það sem ég borða
Þetta orðatiltæki er rosalega skrítið. Maður er það sem maður borðar!!!
Hverjum datt þetta í hug? Hvað merkir það? Og hvernig í fjandanum á maður að skilja þetta?
Ég hef rosalega mikið pælt í því og eins og upp á síðkastið uppgötvað það að vissulega þá er ég það sem ég borða, þ.e. ég borða lifandi. Ég lifi á meðan ég borða og auðvitað nýt þess. Grænmetið sem ég borða er lifandi og er lifandi inni í mér, það hjálpar líkamanum mínum að fá þau næringarefni sem það þarf. Öll vítamínin og steinefnin sem í grænmeti og ávöxtum. Mjólkin sem ég drekk er lifandi. Kalkið sem ég fæ úr mjólkinni og mjólkurvörunum hjálpar beinunum mínum að styrkast.Kjötið sem ég borða er lifandi. Próteinin sem ég fæ úr kjötinu hjálpar til við að efla vöðva (hef ég heyrt). Ég er enginn næringarfræðingur en ég hef þó áhuga á að læra og skilja fæðuna sem ég neyti.Þess vegna er ÉG það sem ég borða!!!
Ég er búinn að missa 12 kíló frá því í maí sl. eftir að ég hætti að drekka þetta !”$#%&&/ kók og sé sko engan veginn eftir því og búinn að detta niður um 2 fatastærðir.Samt á ég veikleika og það er snakkið. Alger snakkfíkill, er að reyna með því að borða grænmeti í staðinn.
Ætla að skilja ykkur með einni æðislega góðri uppskrift af fersku salati og fetaosti sem er frábært með öllum mat.
1 poki af salatblöndu frá Himneskri Hollustu (Má vera hvað sem er)
½ Askja af sveppumPaprika, rauð og græn
Brauðteningar frá Mr. Cubbison Caesar Salad með hvítlaukskryddi (geðveikt gott)
½ Rauðlaukur
Vínber græn
Fetaostur með sólþurrkuðum tómötum og ólívum
Hreinsið salatið undir köldu vatni og setjið svo í skál. Skerið sveppina, paprikurnar og rauðlaukin í hæfilega bita og setjið svo í skál. Takið svo vínberin og skerið þau til helminga og svo fetaostinn og brauðteningana seinast. Hellið smá af olíunni af fetaostinum út á salatið. Hrærið svo í salatinu og setjið svo í smástund inn í ísskáp.
Þetta salat er hægt að nota með öllum mat, sama hvað það er og svo er hægt að hafa með í þessu afgang af kjúklingi, skera niður reyktan lax og setja út í. Bæta hinu og þessu með t.a.m. furuhnetum og epli,
Dressing með salatinu.
1 dós 18% sýrður rjómi
1 bréf af Sommer dressingu frá Knorr
1 bréf af Græsk dressingu frá Knorr.
Hrærið í skál og setjið inn í ísskáp hálftíma til klukkutíma áður en borið er fram með salatinu.
Endilega skrifið mér ef þið hafið eitthvað meira að segja um þetta ,,Ég er það sem ég borða"
Meikar þetta einhvern sens???????????
Ekkert meira í bili
Matargatið kveður.
matagatid@hotmail.com
Sendið mér póst ef þið viljið koma uppskriftum á svæðið.
Ný síða
Verið velkomin á nýja bloggsíðu sem er ætluð fyrir þá sem hafa áhuga á mat og matarmenningu og einnig ef þið viljið skiptast á uppskriftum og senda uppskriftir sem verða svo settar hér á síðuna
E-mail matargatid@hotmail.com
Gangið í bæinn og njótið.
kv. Kiddi Jói